Veðrafjall

  1. home
  2. Books
  3. Veðrafjall

Veðrafjall

3.36 28 3
Share:

Í miðjum Jónsmessufagnaði í bænum Stenräsk flýtur lík upp úr Köldumýri. Í fyrstu er talið að þetta sé lík eiginkonu...

Also Available in:

  • Amazon
  • Audible
  • Barnes & Noble
  • AbeBooks
  • Walmart eBooks

More Details

Í miðjum Jónsmessufagnaði í bænum Stenräsk flýtur lík upp úr Köldumýri. Í fyrstu er talið að þetta sé lík eiginkonu lögreglustjórans Wikings Stormberg sem hafði horfið fyrir mörgum árum. En svo kemur í ljós að líkið er af karlmanni. Það hafði verið fest við botn mýrinnar með stiku í gegnum hjartað – eins og í vampírusögu.

Við rannsókn málsins hverfur Wiking á vit fortíðarinnar og sogast óvænt inn í eigin fjölskyldusögu þar sem ískyggileg leyndarmál opinberast honum í fyrsta sinn.
Mögnuð spennusaga um ofbeldi og þrár, kúgun og arðrán – á fólki jafnt sem náttúru.

Veðrafjall er sjálfstætt framhald metsölubókanna Heimskautsbaugur og Kaldamýri sem hlotið hafa einróma lof gagnrýnenda. Bókin kemur út í sama mund á öllum Norðurlöndum.

Verðlaunahöfundurinn Liza Marklund er óumdeild drottning norrænna glæpasagna. Bækur hennar hafa selst í yfir 23 milljónum eintaka og meðal annars komist í efsta sæti metsölulista New York Times.

„Liza Marklund kann þá list að skrifa glæpasögur ... Enginn verður fyrir vonbrigðum með þessa nýju bók hennar. ... Heildareinkunn: 5 – Frábær!“ BTJ




  • Format:Paperback
  • Pages:283 pages
  • Publication:2023
  • Publisher:Ugla
  • Edition:
  • Language:isl
  • ISBN10:
  • ISBN13:9789935218681
  • kindle Asin:



About Author

Liza Marklund

Liza Marklund

3.65 68078 4519
View All Books